Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Gagnasafn

Myndir

Frábær vika að baki....Dísa í Sønderborg

Nú er mikilli ferðatörn lokið hjá okkur í bili.  Danirnir "okkar" eru farnir heim og við höfum loks tíma til að fara að hitta fjölskyldu og vini.  Síðasta vika er búin að heppnast einstaklega vel.  Hópurinn var mjög ánægður með ferðina og við einstaklega heppin með veður og bara allt.... 

Sunnudagurinn fór í Reykjavíkurtúr.  Við fórum m.a. á Þjóðmynjasafnið (æðislegt), Listasafn Íslands sem var alveg ágætt og toppurinn á því var auðvitað að sjá Björk Guðmundsdóttur sem var þar að spóka sig.  Það var ekki leiðinlegt að hitta á hana þar sem í hópnum voru gallharðir Bjarkar-aðdáendur sem urðu alsælir að fá að sjá goðið sitt.  Við kíktum líka á Hallgrímskirkju sem reyndar er verið að gera við og á safn Einars Jónssonar sem stóð sko algerlega fyrir sínu.  Við enduðum bæjarferðina á ferð í Kolaportið sem var notuð til að versla ýmislegt góðgæti, eins og harðfisk íslenskt sælgæti ofl.  Um kvöldið var svo farið í Vesturbæjarlaugina og eftir það, snæddur íslenskur fiskur.  Frábær dagur í góðum félagskap.

Á mánudag var farið austur fyrir fjall, og gengið upp Reykjadalinn.  Það var fín fjallganga, svolítið erfið fyrir suma en allir komust þó á áfangastað.  Það var mikil fegurð barin augum að mati ferðalanga og voru allir sælir og þreyttir eftir erfiðan en góðan dag.  Hluti hópsins baðaði sig í hveravatni uppi á fjalli og þótti það mjög spennandi. 

Þriðjudagurinn byrjaði á Hvalaskoðun.  Það var skemmtileg ferð, nokkrir hvalir sáust og svona sæmilegt í sjóinn.  Nokkrir urðu sjóveikir en allir jöfnuðu sig að lokum og var hópurinn í heild ánægður með ferðina.  Stefnan var að ganga Esjuna seinnipartinn en sökum mikllar þreitu í fólki var ákveðið að hætta við það.

Miðvikudagurinn var frjáls og notuðu flestir tímann til að spóka sig í borginni.  Seinnipartinn var kíkt á Sögusafnið í Perlunni sem var mjög flott og svo um kvöldið borðaði hluti hópsins í Perlunni.  Maturinn var góður og útsýnið fallegt.

Á fimmtudeginum var haldið í Þórsmörk.  First var stoppað við Seljalandsfoss þar sem fólk kíkti meðal annars undir fossinn.  Dönunum fannst þetta mjög spennadi og fallegt.  Mörkin stóð að venju fyrir sínu og ekki laust við að fólk hafi verið orðlaust yfir náttúrufegurðinni.  Við fengum yndislegt veður og löbbuðum m.a. frá Húsadal yfir í Langadal.    Eftir mörkina lá leið til Hellu þar sem búið var að undirbúa smá "suprise" fyrir ferðalangana.  Fjölskyldan hans Leifs vinar okkar undirbjó fyrir okkur yndislega stund sem við áttum í hellum á landi Ægissíðu, þaðan sem hún Hafdís vinkona okkar er frá.  á landinu er stór sandhellir sem ber ekki mikið á utan frá.  Þegar inn kom voru þau búin að kveikja á fullt af kertum sem stóðu á sillum út um allan hellinn.  Systur hans Leifs og mágur spiluðu á þverflautu og gítar og sungu.  Þetta var rosalega fallegt og yndisleg upplifun alveg.  Danirnir voru algerlega frá sér numdir af hrifningu og ekki laust við að það hafi fallið nokkur tár.  Þetta var sko fábært "suprise"  og allir alsælir eftir þetta.  Við fórum eftir þessa óvæntu ánægju austur á skeiðar í bústaðinn til Mömmu og pabba.  Þar beið alíslensk kjötsúpa eftir okkur.  Það var sko tekið þvílíkt vel á móti okkur og danirnir agndofa yfir gestrisinni.  Hluti hópsins skellti sér á hestbak um kvöldið og aðrir fóru í pottin eða annað huggulegt. 

Á föstudagsmorgunn var haldið til Gullfoss og Geysi sem auðvitað klikkuð ekki.  Við kíktum svo á Kerið og lokin var gengið á Þingvöllum í fallegu veðri.  Hópurinn var mjög hrifin af nátturufegurðinni og höfðu margir orð á að vilja ekki fara heim....bara allt of stuttur tími.

En laugardagsmorgunn skellti hópurinn sér í Bláa lónið og á eftir var stórum hluta hópsins skutlað á flugvöllin þaðan sem leiðin lá heim til Danmerkur fyrir þau.  Restin fór aftur í Vesturbæjarskóla og áttu flug í dag sunnudag. 

Ferð dananna var mjög vel heppnuð og allir ánægðir.  Hópurinn var góður og náði vel saman.  Gistiaðstaðan í Vesturbæjarskóla var til fyrirmyndar og þökkum við mikið fyrir frábæra greiðikni og gestrisni.  Við vorum leyst út með góðum gjöfum ásamt mömmu og pabba, með þakklæti fyrir gestrisina. 

Svona var sem sagt vikan í stórum dráttum.  Við tekur önnur vika sem verður væntanlega góð fyrir okkur í faðmi fjöskyldu og vina.  Stefnan er m.a. að halda smá útskriftarveislu á föstudaginn ef mér tekst að fá sal á skikkanlegu verði...það er allt í vinnslu.

Íslenska gsm nr. mitt er 6975132 og síminn heima hjá mömmu og pabba:  5574043.

Ég er búin að hlaða inn tæplega 300 myndum frá síðustu viku inn í júlí albúmið.  Velkomið að kíkja á það.

Knús í bili...
Dísa

Komin með plaggið....og á leið til Íslands.Dísa í Sønderborg

Smá blogg svona áður en við leggjum í hann til Íslands.  Í gær útskrifaðist ég úr Háskólanum hér í Sonderborg.  Það var undarleg tilfinning en ekki síður góð.  Ég var nú hálf smeik við það fram á síðustu stundu að vera ekki kölluð upp.  Það hefði verið frekar pínlegt þar sem við útskrifuðusmst bara 7 úr þessu námi og aðeins 4 fyrir utan mig voru viðstödd í gær.  Það hefði verið hálf vandræðalegt að standa þarna 5 upp á sviði og ég ekki kölluð upp.  En það voru óþarfa áhyggjur.  Ég fékk mitt skírteini og er orðin Master of science in It Productdesign.  Eftir útskriftina var boðið upp á veitingar í Alsion sem voru virkilega fínar. 

Seinnipartinn fórum við svo til hennar Dagnýjar superhjúkkku í útskriftarveislu sem var aldeilis rosalega flott, grillmatur og fínerí.  Eftir það kíktum við á hann Pétur sem  nú er orðinn hátæknifræðingur.  Það var gott að geta farið og hitt fólk og fagnað aðeins með því.  Sævar gisti hjá Ísak vini sínum og Dagný Eva hjá Mikael frænda sínum.  Það verður spennandi að hitta hana á eftir og sjá hvernig gekk.  Efast nú ekkert um að hún skemmti sér vel.   

Í dag kl. 16 tökum við svo lestina til Köpen og fljúgum til íslands í kvöld.  Okkur hlakkar mikið til.  Dagskrá næstu viku er nokkurnvegin svona:

Laugardagur:  Farið í Versturbæjarskóla sem gist verður næstu vikuna

Sunnudagur:   Borgarferð.  Reykjavík verður skoðuð og hennar vonandi notið í botn.  Við kíkjum væntanlega á Hallgrískirkju, Þjóðminjasafn, miðbæjinn, Öskjuhlíð ofl.  Ekki er ólíklegt að endað verði daginn á sundferð.  Allar hugmyndur um hvað hægt er að gera í Rvk. eru vel þegnar.

Mánudagur:  Farið í hveragerði og hverar skoðaðir.  Hellisheiðarvirkjun skoðuð. 

Þriðjudagur:  Hvalaskoðun fyrripart og Esjuganga seinnipart

Mivikudagur:  Frjáls dagur

Fimmtudagur:  Þórsmörk, Hellaskoðun, hestbak.

Föstudagur:   gullfoss, Geysir, Hellaskoðun

Laugardagur:  Bláa Lónið og heimferð fyrir hluta hópsins.

Eins og sést verður nóg að gera hjá okkur næstu viku.  En eftir hana þegar danirnir eru farnir heim þá ætlum við að nota tækifærið og hitta og knúsa vini og ættingja.

Við förum svo aftur heim mánudaginn 14. júlí.  Strax daginn eftir fáum við svo góða gesti til okkar.  Þau Gulla, Önnu og Kolbrúnu Birnu.  Það verður örugglega brallað eitthvað skemmtilegt saman þá. 

Strax eftir að þau fara koma Rafn og Telma til okkar og við erum jafnvel að spá í að skella okkur í smá ferðalag suður á bógin.  Það kemur allt betur í ljós seinna.  Hún Rebekka mín og börnin hennar voru svo eitthvað að spá í að koma þegar Rafn og Telma eru farin en ég veit ekki hvernig staðan er á því núna.  Vona bara að þau sjái sér fært að kíkja aðeins á okkur. 

En sumarið er sem sagt vel planað hjá okkur, fyrir utan garð og húsvinnu.  Strax og ég kem til baka ætla ég svo að fara að sækja um vinnur.  Vonandi gerist eitthvað í því áður en mér dettur í hug að fara í meira nám he he (not).   

En það er víst eins gott að fara að drífa sig að þvo og pakka enda styttist óðum í íslandsferð :) 

Knús á ykkur öll og vonandi hittum við sem flesta á Íslandi. 

Takk fyrir allar kveðjurnar og kvittin á síðuna.  Það er ómetanlegt að fá hlýjar og skemmtilegar kveðjur frá þeim sem lesa.

Dísa, Master of science in It Productdesign :)

Nú verð ég að tjá mig....Dísa í Sønderborg

Ég er í sæluvímu núna.   Var að fá að vita að ég búin að ná öllu og þar með að fara að útskrifast í næstu viku!  Eftir vörnina á mánudaginn sem gekk ágætlega, fór ég heim til að klára síðustu ritgerðina mína sem ég skilaði svo á þriðjudag.  Er svo eiginlega búin að vera með magapínu síðan.  Var eiginlega skíthrædd um að falla á þessari ritgerð eeeeeen ég náði og er þvílíkt ánægð.  

Ég var ekkert voðalega sátt eftir vörnina, en að vel ígrunduðu máli og smá tilfinningarússibanaferð þá er ég bara nokkuð stolt af sjálfri mér.  Þó ég hafi ekki dúxað þá var þessi lokaritgerð mín það erfiðasta sem ég hef tekist á við á mínum námsferli og kröfurnar miklar.  Og ég náði... meira segja gerði ég meira en að skríða og þó að ég hefði gjarnan viljað fá hærri einkun þá er mér í raun alveg sama.  Er bara ánægð með að hafa náð þessum áfanga...trúi bara ekki að þetta sé búið.  Ég held ég sé að sætta mig við að ég er ekki og þarf ekki að vera fullkomin og góð í öllu!  Það er líka áfangi fyrir mig....maður verður að gera raunhæfar kröfur, annars verður maður aldrei sáttur. 

Framundan er svo bara gleði og aftur gleði.  Sumarhátíð í skólanum hjá Sævari í kvöld, útskrift og Íslandsferð í næstu viku, sumarfrí og góðir gestir þegar við komum til baka.  Atvinnuleit og meiri gleði.  
Nú er eitthvað svo margt að hlakka til.

Ég er ekki viss um að ég hefði náð að klára þetta nám mitt nema með aðstoð góðra.  Ég á heimsins bestu vini og fjölskyldu. Hundraðþúsund þakkir fyrir alla ykkar hjálp í formi stuðnings, pössunar, hvatningar, félagskapar og alls hins sem gerir ykkur eins yndisleg og þið eruð.  

Ég vil líka óska Dagnýju vinkonu minni til hamingju með áfangann.  Hún er að útskrifast sem húkrunarfræðingur í næstu viku....  Stóð sig eins og hetja stelpan.  Endalaus knús á þig...ég er þvílíkt stolt af þér!!!:)

Knús á ykkur öll...
Dísa í sæluvímu

SumargleðiDísa í Sønderborg

Ég veit ekki afhverju..en mér líður eins og það sé helgi.  Kanski er það bara út af því að allir dagar eru skemmtilegir..eins og helgar.  Það er svo miklu fargi af manni létt þegar maður hefur skilað af sér svona stóru verkefni.  Finnst eins og ég sé komin í frí þó ég sé það ekki.  Ég er að minsta kosti miklu bjartsýnni og jákvæðari heldur en síðastliðna viku.  Var bara búin á því og sá bara svart.  Svoleiðist er það stundum.  Svo gerir maður sér grein fyrir jákvæðu hlutunum..sem eru óteljandi margir, a.m.k. í mínu tilfelli.  Ég er alltaf að reyna að minna sjálfa mig á að lifa í núinu og láta hluti sem skifta ekki máli ekki ná tökum á mér.  En maður gleymir sér bara öðru hvoru í hita leiksins...En núna finnst mér ég heppin og vildi ekki að líf mitt væri neitt öðruvísi en það er. 

 

Ég held líka að ég sé að sætta mig við það smá saman að ég er ekki og verð aldrei fullkomin, og ekki nóg með það heldur er það allt í lagi.  Ég ætla mér að vera sátt við hvernig mér gengur í skólanum þó að ég fái ekki toppeinkannir í öllu...það skiftir engu máli og öllum er sama...nema mér.  Ég verð bara yfir mig hamingjusöm ef ég næ að klára þessi ósköp..það er afrek út af fyrir sig. 

 

Við fórum í matarklúbbsboð til Einars og Stínu á laugardaginn.  Það var alveg yndislegt veður, góður matur og frábær félagskapur.  Kvöldið sem sagt vel heppnað.  Dagný Eva þessi elska var reyndar ekki mjög heppin þetta kvöld.  Hún var að hoppa á trampolíninu ásamt Steinunni vinkonu sinni og það gleymdist að renna upp rennilásnum á öryggisnetinu.  Henni tókst auðvitað þessari elsku að finna gatið á netinu og skjótast út um það og lenda með höndina undir sér.  Hún kveinkaði sér talsvert en sofnaði svo fljótlega.  Daginn eftir fórum við með hana til Aabenraa á slysó og þá kom í ljós að hún var handleggsbrotin þessi elska.  Það á ekki af henni að ganga hún er alltaf á hausnum barnið.  Hún hefur meira að segja gert þetta áður, á tampolíninu hjá henni Lindu á íslandi..en slapp nú betur þá. 


 
Dagný Eva komin í gifs

Sævar er í þriggja daga ferðalagi í Arhus með bekknum sínum.  Hann kemur heim á föstudaginn.  Hann var orðinn frekar spenntur þessi elska í gær og ætlaði aldrei að geta sofnað.  Ég vona að hann skemmti sér vel með vinunum í verslunartúrnum..eins og hann orðaði það. 

 

Við Snorri vorum ásamt Dagnýju Evu og fleyrum á sumarhátið hjá leiksólanum hennar Dagnýjar áðan.  Það var mjög gaman nema hvað að veðrið var ekki eins gott og undanfarnar vikur og svei mér þá ef manni varð ekki bara kalt.  En það var nú samt gaman...við íslendingarir látum ekki smá blástur trufla okkur í góðu geimi...

 

Helgin er að vanda stútfull af skemmtilegum uppákomum, þar á meðal 17 júní hátið Íslendingafélagsins.  Svo er ég auðvitað að undirbúa vörnina mína sem er á mánudag og að skirfa verkefnið mitt sem ég þarf að skila.   

 

Knús á ykkur öll....

Dísa

Komin helgi aftur...Dísa í Sønderborg

Ég skilaði loksins ritgerðinni minni á mánudaginn.  Ég er ekki nógu sátt við hana en vona bara það besta.  Er alveg útkeyrð eftir þessa törn og kem litlu í verk.  Veðrið er yndislegt og búið að vera það síðustu vikur.  Helgin býður upp á afmæli matarklúbb og fleyra skemmtilegt..hef samt ekki orku, veit bara ekki hvernig ég fæ hana aftur.  Þarf að undirbúa vörnina og skila einu verkefni.  Þetta hlítur að hafast...líður samt ekki þannig. 

Sævar er í afmælispartýi  og verður í allt kvöld.  Við hin ætlum bara að hafa rólegt hérna heima.  Eigum 10 ára brúðkaupsafmæli í dag.  Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða.
Óska ykkur góðrar helgar.
Dísa

Dirty SexDísa í Sønderborg

Gat verið.  Fyrirsögnin trekkir að.  Ekki að spyrja að því.  En Snorrinn minn er nefnilega 36 ára í dag.  Innilega til hamingju með daginn elsku Snorri minn.  Hann er alltaf jafn ungur í anda og útliti þessi elska, ofvirkur og vinnusamur með eindæmum.


Ég náði þessari mynd af honum þegar hann leit upp frá garðvinnunni um daginn....gerist ekki oft að hann líti upp frá vinnunni, en ég náði að smella þessari af honum.  Í tilefni dagsins verður heitt á könnunni í kvöld og kanski eithvað smá með fyrir villuráfandi vini sem eiga óvart leið framhjá.  

Annars gengur allt alveg ágætlega hér.  Ég skrifa og skrifa en finnst það ganga ansi hægt.  Kemur allt í ljós bara.  Þannig að, Helga; bara vel :)

Knús á ykkur og eigið góðan dag.

Kv, Dísa afmælisbarnseiginkona

Hmmm......Dísa í Sønderborg

Ég sit hér á nýja pallinum mínum í tæplega 20 gráðu hita og sól og er að reyna að skrifa ritgerðina mína.  Það gengur reyndar ágætlega og þetta silast svona áfram.  Ég þarf ekki að skila ritgerðinni fyrr en 2. júni og hef því tæpar 4 vikur til stefnu.  Ég ætl að gera mitt besta til að klára þetta.  Ég er ekki alveg að nenna að eiga þetta eftir. 

Hún Helga Margrét vinkona mín var hérna hjá mér um helgina.  Ég ákvað að taka mér bara gott helgarfrí til að hlaða batteríin og vera með Helgu og famelíuni í rólegheitunum.  Það tókst alveg ágætlega og áttum við yndislega helgi saman.  Svo tók alvaran við aftur og ég skellti mér í skrifgírinn og reyni mitt besta.  Veðrið er reyndar algert æði og freystandi að vera bara í garðinum að dúlla sér.  En maður tekur bara góðar pásur inn á milli og gerir eitthvað skemmtilegt.

Annars er garðurinn orðin allur uppgrafinn að framanverðu. Við erum gjörsamlega að umturna öllu.  Það verður spennandi að sjá hvernig útkoman verður.  Veðurspáin er rosalega góð þannig að ég verð að sætta mig við að læra í góða veðrinu.  Reyndar á sumarið víst að vera mjög gott hér í DK. þannig að ég fæ örugglega að njóta þess þegar þessi törn er búin. 

Það eru fullt af nýjum myndum í albúminu okkar.
http://snorriogdisa.villingaholt.nu/main.php

Over and out...
Kveðja frá mér.
Dísa

Ritstífla á hæsta stigi...Dísa í Sønderborg

Nú eru rúmar 2 vikur til ritgerðaskila hjá mér og ég get ekki sagt að það gangi neitt sérlega vel.  Í rauninni gengur bara mjög illa.  Ég á erfitt með að einbeita mér að skrifunum og langar bara að gera eiginlega allt annað en að læra.  Úff þetta er alveg glatað.  Ég er búin að vera að spá hvort ég eigi bara að fresta þessu, eða spýta í lófana og drífa þetta af.  Finnst ég bara eitthvað svo lost og hef um nóg annað að hugsa.  T.d. nýja sólpallinn minn sem er algert æði.  Hann er sko alveg að verða tilbúinn og þá skelli ég inn mynd af honum.   

Það er búið að vera meira en lítil hjálp í pöbbunum okkar sem eru búin að vera að hjálpa okkur við sólpallasmíðarnar.  Nágranni okkar á ská labbaði við einn daginn og spurði hvar hann hefði fengið þessa duglegu pólverja og hvort hann gæti fengið þá á eftir okkur.  Það eru ekki ófáir vegfarendur sem stoppa og dást að pallinum.  Pabbi fór svo á laugardasmorguninn til baka til Íslands eftir þvílíka vinnutörn hérna hjá okkur.  Tengdó er búin að vera að dunda sér við frágang sem er sko ekkert smá flott.  Þeir eru sko algerir snillingar þessir menn..engin spurning. 
 

Aftur að ritgerðinni.  Ég fer á fund eftir helgina með vejlernum mínum sem er frekar svartsýnn á þetta hjá mér.  En ég ætla mér að reyna að hamast við skriftir um helgina og sanna að hann hafi rangt fyrir sér.  Ég bara verð....   En hrikalega getur þetta verið erfitt, ég segji nú ekki annað.  
 

Hún Eva, mamma hennar Matdildu vinkonu hennar Dagnýjar Evu sem býr í Kolding var svo yndisleg að bjóða Dagnýju Evu að vera hjá þeim yfir helgina.  Tímasetningin er algerlega fullkomin fyrir mig þar sem Snorri og tengdó fara á karladag allan laugardaginn og ég á kafi í skriftum.  Ég held meira að segja að hún fái að fara með þeim í Dýragarðinn í Odinse á laugardaginn þannig að þetta verður sennilega engin slor helgi fyrir hana.  Hún saknar líka vinkonu sinnar gífulega mikið og talar oft um hana.   
 

Það er sem sagt ekki slæmt útlitið um helgina þar sem ég ætti að geta skrifað út í eitt...eða tvennt.  En ég geri ekki ráð fyrir að blogga mikið á næstunni..nema að ég fresti ritgerðinni.  Sjáum nú bara til með hvernig gengur um helgina..ætla að reyna mitt besta.   En ég ætla að henda inn myndum af sólpallinum fljótlega.
 Knús á ykkur öll.....og góða helgi. 

Dísa með ritstíflu.

Komin heimDísa í Sønderborg


Okey...kanski komin tími á smá blogg.   Er ekki alveg að hafa tíma í þetta, en það tekur svo sem ekki langa stund að skella saman nokkrum línum.   Við erum sem sagt komin til baka til DK. 

Ferðin til Íslands var alveg virkilega fín og ég held svei mér þá að við höfum slegið hittingsmet..með því að hitta alveg ótrúlega marga af þeim sem við þekkjum á stuttum tíma.  Samt náðum við ekki frekar en vanalega að hitta alla sem við vildum. 
 Sævar var vel sáttur við skólann og var þetta því ánægjulega og mjög jákvæð reynsla fyrir hann.  Honum fannst ekkert leiðinlegt að vera með Kristófer vini sínum svona mikið og svo honum Bjarti sínum.  Þeir hittust eins mikið og þeir gátu þessar elskur og við eiginlega sáum Sævar ekki mikið nema bara helst þegar við skruppum í veislur.   

Dagný Eva elskaði Ísland en var komin með þvílíka heimþrá til vinanna heima þegar leið á.  Hún var virkilega hamingjusöm að komast heim til DK. aftur og faðmaði og knúaði alla bangsana sína (það tók svolítinn tíma).  Hún gott af því að koma aðeins á Frón, kynnast fjölskyldu og vinum betur og tala Íslensku, sem var virkilega gott fyrir hana. 
 

Ég náði að afla mér þess efnis sem ég ætlaði fyrir ritgerðina.  Nú er ég bara að reyna að vinna úr öllu þessu efni og skrifa eitthvað mjög svo gáfulegt.  Það gengur nú misjafnlega eftir dögum..en hlítur að ganga fyrir rest.
 

Hér koma svo nokkrar myndir frá Íslandsferðinni: 

Bustadurinn hja Ragga og Guggu badadur i nordurljosum



Dagný Eva og Danýel Dúi að leika sér úti í snjónum.



Sævar með langömmu Dísu



Dagný Eva með Heiðu og Emelíu frænkum sínum



Nöfnurnar saman á góðri stundu



Dagný Eva og Ásta frænka



Dagny Eva langömmu Dísu



Dagny Eva med Kareni franku sinni.



Þrjú af fermingarbörnunum, Ingi, Emelía og Arnar Máni.



Fallegu frænkurnar, Dagný Eva, Helga Margrét og Harpa Lóa



Raggi og Sævar



Dagny Eva med langommu Evu og langafa Rafni



Dagny Eva a hestbaki med afa Ingo.



Snorri sterki, ber að ofan í snjósleðaferð.



Rafn a fartinu i snjosledaferdinni.


Og Snorri sæti...

Fleyri myndir eru til ur Islandsferdinni sem eg mun setja inn i albumid tegar tad verdur komid i lag.

Nu eru við að bíða eftir gestum sem koma í kvöld.  Hann pabbi og Jón tengdapabbi ætla að koma til okkar og hjálpa okkur að smíða pall hérna fyrir utan borðstofugluggann okkar.  Svo er stefnan tekin á að opna hérna út þannig að við getum setið í sólinni á morgnanna og drukkið morgunnkaffið okkar....og grillað á kvöldin.  Það er sko ekki slæmt að fa svona góða hjálp alla leið frá Íslandi.  Við hendum inn myndum af projectinu við tækifæri. 

 
Ætla að hætta í bili og reyna að skrifa eitthvað í ritgerðinni minni....Over and out....

Disa

Fjör á FróniDísa í Sønderborg

Ég lofaði víst að láta eitthvað vita af okkur hérna á Íslandi.  Við Sævar vorum hér í tvær vikur áður en Snorri og Dagný Eva komu til okkar.  Sævar byrjaði í Laugalækjaskóla á mánudeginum.  Hann er svo heppinn að hann fékk að fara í sama bekk og Kristófer vinur hans.  Hann er alveg í skýunum með skólann og allt saman hér.  Honum var tekið vel í bekknum, og ekki sakar að fá að eyða svona miklum tíma með vini sínum.  Honum gengur bara vel í skólanum, nema auðvitað er íslenskan erfið.  Hann tók sitt fyrsta próf í síðustu viku en það var í stærfræði.  Honum gekk ljómandi vel, fékk 9,1 og var bara sáttur við það.  Ein af ástæðunum fyrir því að við ákváðum að hann prufaði skólann hér var sú að sjá hvar hann stæði námslega séð miðað við jafnaldra sína hér.  Það lítur út fyrir að hann standi bara ágætlega og gæti vel plummað sig hér.  Hann blómstrar líka í félagskap vina sinna Kristófers, Bjarts og allra hinna.  Frábært hreinlega hvað hann nær að halda sterkum tengslum við vini sína hér...enda sko alveg þess virði.  Eftir skóla fer hann alltaf til Kristófers þar sem þeim leiðist held ég ekkert að dunda sér eitthvað saman.  Bara gaman!

Ég er búin að vera talsvert upp á barnaspítala þar sem ég er að vinna verkefnið mitt.  Ég er búin að taka 6 góð viðtöl og á 2 eftir þannig að allt er á full swing hjá mér.  Svo þarf ég að skrá viðtölin niður og þýða yfir á ensku.  Þetta er því heilmikil vinna og svo er ég svona að reyna að vinna úr þessu öllu saman og byrja á að skrifa sjálfa ritgerðina.  En þetta gengur sem sagt allt vel og því er ég sátt.

Það var svo ekki leiðinlegt að fá feðginin til okkar á fimmtudaginn.  Ég var farin að sakna þeirra mikið og sýndist það vera gagnkvæmt.  Um helgina skelltum við okkur upp í sumarbústað þar sem við vorum fram á laugardag í yndislegu veðri snjó og glampandi sól.  Dagný Eva er svo sátt við snjóinn.  Á leiðinni heim frá flugvellinum spurði hún og benti út í myrkrið; Hvað er þetta hvíta ofan á moldinni? Hún átti að sjálfsögðu við snjóinn.  Hún notar hvert tækifæri sem fæst til að trampa í snjónum og leika sér.  Við keyptum snjótþotu sem við tókum með okkur upp í sumarbústað og var mikið leikið með hana.  Snorri var að hjálpa Ragga bró og Bjarka að smíða og ég að dúllast með mömmu og krökkunum.   Bara yndisleg helgi. 

Á laugardeginum fórum við Snorri í leikhús ásamt Helgu Margréti, Annettu, Árna Jóni og vinafólki þeirra.  Við fórum á Kommúnuna í Borgarleikhúsinu.  Mér fannst sýningin svona la la.  Ágætis afþreying en ekki mikið meira en það.  Gaman samt því félagskapurinn var góður.

Á sunnudaginn var svo fyrsta fermingin hjá honum Inga töffara frænda mínum.  Fermingin haldin í Rúbínsalnum í Öskjuhlíðinni...alveg hreint glæsilegur salur. Á fimmtudag eru svo tvær fermingaveislur hjá honum Arnari Mána og Emilíu skvísu.  Á laugardaginn er það svo hann Elvar Þór sem býður til fermingaveislu og á mánudaginn er svo ein veislan í viðbót hjá honum Jóni Ragnari frænda mínum. 

Það er sem sagt nóg að gera hjá okkur hér.  Áður en Snorri og Dagný komu fór ég líka í sumarbústað með vinkonum mínum, í bíó og heimsóknir.  Við eigum svo eftir að fara í slatta af matarboðum og heimsóknum, halda matarklúbb og hitta fullt af fólki.  Í gærkvöldi eftir ferminguna fórum við Snorri á kaffihús og í bíó sem var rosa gaman.   Snorri skellti sér svo í vinnugallan í morgunn og fór að vinna....en ekki hvað!  okkur leiðist sem sagt ekki hér, enda í góðum félagskap vina og ættingja. 

Það er samt alltaf skrítið að vera ekki heima, og það verður líka gott að komast í faðm vinanna í vorið í Sonderborg.  En við njótum þess á meðan við erum hér.....

Knús á ykkur öll..sérstaklega ykkur í Sönder, og Hafdís, Begga, Helga ofl...takk takk fyrir að hjálpa Snorra með Dagnýju Evu og leyfa henni að vera hjá ykkur....þið eruð sko betri en engin.   


Dísa og co í góðum málum á Íslandi. 
Síða 1 af 4

Klukkan

Teljari

Bloggarar

Blessuð börnin.....

Athyglisverðar síður

Danmörk

Ísland