Sammála Beggu! Gott að heyra að þið eruð að njóta ykkar.
Gleðilega páska. :-)
kv Helga.
disa.bloggar.is
Fjör á FróniDísa í Sřnderborg
Ég lofaði víst að láta eitthvað vita af okkur hérna á Íslandi. Við Sævar vorum hér í tvær vikur áður en Snorri og Dagný Eva komu til okkar. Sævar byrjaði í Laugalækjaskóla á mánudeginum. Hann er svo heppinn að hann fékk að fara í sama bekk og Kristófer vinur hans. Hann er alveg í skýunum með skólann og allt saman hér. Honum var tekið vel í bekknum, og ekki sakar að fá að eyða svona miklum tíma með vini sínum. Honum gengur bara vel í skólanum, nema auðvitað er íslenskan erfið. Hann tók sitt fyrsta próf í síðustu viku en það var í stærfræði. Honum gekk ljómandi vel, fékk 9,1 og var bara sáttur við það. Ein af ástæðunum fyrir því að við ákváðum að hann prufaði skólann hér var sú að sjá hvar hann stæði námslega séð miðað við jafnaldra sína hér. Það lítur út fyrir að hann standi bara ágætlega og gæti vel plummað sig hér. Hann blómstrar líka í félagskap vina sinna Kristófers, Bjarts og allra hinna. Frábært hreinlega hvað hann nær að halda sterkum tengslum við vini sína hér...enda sko alveg þess virði. Eftir skóla fer hann alltaf til Kristófers þar sem þeim leiðist held ég ekkert að dunda sér eitthvað saman. Bara gaman!
Ég er búin að vera talsvert upp á barnaspítala þar sem ég er að vinna verkefnið mitt. Ég er búin að taka 6 góð viðtöl og á 2 eftir þannig að allt er á full swing hjá mér. Svo þarf ég að skrá viðtölin niður og þýða yfir á ensku. Þetta er því heilmikil vinna og svo er ég svona að reyna að vinna úr þessu öllu saman og byrja á að skrifa sjálfa ritgerðina. En þetta gengur sem sagt allt vel og því er ég sátt.
Það var svo ekki leiðinlegt að fá feðginin til okkar á fimmtudaginn. Ég var farin að sakna þeirra mikið og sýndist það vera gagnkvæmt. Um helgina skelltum við okkur upp í sumarbústað þar sem við vorum fram á laugardag í yndislegu veðri snjó og glampandi sól. Dagný Eva er svo sátt við snjóinn. Á leiðinni heim frá flugvellinum spurði hún og benti út í myrkrið; Hvað er þetta hvíta ofan á moldinni? Hún átti að sjálfsögðu við snjóinn. Hún notar hvert tækifæri sem fæst til að trampa í snjónum og leika sér. Við keyptum snjótþotu sem við tókum með okkur upp í sumarbústað og var mikið leikið með hana. Snorri var að hjálpa Ragga bró og Bjarka að smíða og ég að dúllast með mömmu og krökkunum. Bara yndisleg helgi.
Á laugardeginum fórum við Snorri í leikhús ásamt Helgu Margréti, Annettu, Árna Jóni og vinafólki þeirra. Við fórum á Kommúnuna í Borgarleikhúsinu. Mér fannst sýningin svona la la. Ágætis afþreying en ekki mikið meira en það. Gaman samt því félagskapurinn var góður.
Á sunnudaginn var svo fyrsta fermingin hjá honum Inga töffara frænda mínum. Fermingin haldin í Rúbínsalnum í Öskjuhlíðinni...alveg hreint glæsilegur salur. Á fimmtudag eru svo tvær fermingaveislur hjá honum Arnari Mána og Emilíu skvísu. Á laugardaginn er það svo hann Elvar Þór sem býður til fermingaveislu og á mánudaginn er svo ein veislan í viðbót hjá honum Jóni Ragnari frænda mínum.
Það er sem sagt nóg að gera hjá okkur hér. Áður en Snorri og Dagný komu fór ég líka í sumarbústað með vinkonum mínum, í bíó og heimsóknir. Við eigum svo eftir að fara í slatta af matarboðum og heimsóknum, halda matarklúbb og hitta fullt af fólki. Í gærkvöldi eftir ferminguna fórum við Snorri á kaffihús og í bíó sem var rosa gaman. Snorri skellti sér svo í vinnugallan í morgunn og fór að vinna....en ekki hvað! okkur leiðist sem sagt ekki hér, enda í góðum félagskap vina og ættingja.
Það er samt alltaf skrítið að vera ekki heima, og það verður líka gott að komast í faðm vinanna í vorið í Sonderborg. En við njótum þess á meðan við erum hér.....
Knús á ykkur öll..sérstaklega ykkur í Sönder, og Hafdís, Begga, Helga ofl...takk takk fyrir að hjálpa Snorra með Dagnýju Evu og leyfa henni að vera hjá ykkur....þið eruð sko betri en engin.
Dísa og co í góðum málum á Íslandi.

Athugasemdir
3
Hafdís skrifar:
Já maður "heyrir" bara að það er gaman hjá ykkur og það er það sem skiptir mestu.
Það er nú bara heimilislegt að hafa hana Dagnýu Evu hjá okkur, eigum svo mikið í henni. Og þegar þið eruð ekki á svæðinu þá finnur maður sko skarðið.......svo komið örugglega aftur :)
Gangi þér vel með námið og gleðilega páska.
Knús Hafdís

17. mars 2008 klukkan 19:12
4
Frú Megabeib skrifar:
Oooohhhh ţeim leiđist nú ekki drengjunum okkar!!!!Takk fyrir ađ leyfa honum ađ vera hérna hjá okkur......... ţađ er svo gaman!!!!
Hils pils....... ég
19. mars 2008 klukkan 00:37
5
Stefanía skrifar:
Gott að allir eru sáttir og gengur vel þú átt hug minn allan varðandi verkefnið þitt og þetta á allt eftir að ganga vel! Saknaðarkveðjur frá Sønderborginni i søol og blíðu og gleðilega páska:)
19. mars 2008 klukkan 09:19
6
Hrund skrifar:
Gaman að heyra að þið njótið dvalarinnar heima. Frábært hjá Sævari að fá svona hátt á prófinu!!!
Gangi þér vel með verkefnið á milli matarboða og snjóþotuferða!
mojn mojn
Gangi þér vel með verkefnið á milli matarboða og snjóþotuferða!
mojn mojn
19. mars 2008 klukkan 15:11
7
ingolfur skrifar:
hljomar eins og island se bara hinn agaetasti stadur;)
kaerar kvedjur
kaerar kvedjur
19. mars 2008 klukkan 19:18
8
Guđrún Ţorleifs skrifar:
Frábært að allt gengur vel og ánægjulega á Íslandi :)
Bestu óskir um gleðilega páska.
Kveðja úr kuldanum í SDB
Bestu óskir um gleðilega páska.
Kveðja úr kuldanum í SDB
20. mars 2008 klukkan 20:17
9
Gulli, Anna og Kolbrún Birna skrifar:
Ola.. Nei vid komum ekki heim fyrr en 27. mars.... Verdi thid farin thá?? Endilega bjallid í gsm símana okkar.. erum alltaf med thá á okkur (já eda svona oftast ;)
20. mars 2008 klukkan 20:42
10
Begga Sřnderborgari skrifar:
Elsku vinir, verð nú bara að senda ykkur páskakveðjur hérna á veraldarvefnum þar sem þið eruð svo laaaangt í burtu. GLEÐILEGA PÁSKA!!!
Er farin að hlakka til að hitta ykkur aftur í apríl. Hafið það gott.
Páskakveðja, Begga
Er farin að hlakka til að hitta ykkur aftur í apríl. Hafið það gott.
Páskakveðja, Begga
23. mars 2008 klukkan 09:38
11
Hrund skrifar:
Gleðilega páska íslandafarar!
24. mars 2008 klukkan 09:55
12
Karen skrifar:
Mér finnst þetta alveg frábært hjá honum Sævari og ferlega gott fyrir hann að vita svona aðeins hvar hann stendur.
Takk fyrir föstudaginn, alltaf svo gaman að hitta ykkur.
Knús, knús frá okkur.
Karen.
Takk fyrir föstudaginn, alltaf svo gaman að hitta ykkur.
Knús, knús frá okkur.
Karen.
24. mars 2008 klukkan 22:46
13
Hafdís skrifar:
Sólbrá Sara saknar Dagnýar Evu rosalega mikið og unir sér varla í dansinum án hennar.
Komið fljótt heim.
Knús Hafdís
Komið fljótt heim.
Knús Hafdís
28. mars 2008 klukkan 18:42
14
dagny sylvia skrifar:
gvuuud ég hef bara aldrei kvittað... samt alltaf kíkja hvort það sé komið nýtt... hélt e´g væri löngu búin að kvitta... skamm ég.
gleðilega páska ;)
ses imorgen
klem
gleðilega páska ;)
ses imorgen
klem
08. apríl 2008 klukkan 19:51
15
Frú Megabeib skrifar:
Sćl skvís og velkomin heim.Ég er alltaf ađ kíkja og vona ađ ég fái fréttir af ykkur...... en ekkert gerist!!!!
Tel ţví ađ ţú hafir nóg ađ gera og ţér gangi fljúgandi vel í verkefninu ţínu.
Sonar ţíns er sárt saknađ!!!!!
Góđa helgi.
ég
11. apríl 2008 klukkan 18:32

Frábært lika að heyra hvað þér gengur vel og hvað þú ert búin að gera mikið í verkefninu þínu.
Svo er nú alltaf gaman að fá hana Dagnýju Evu í heimsókn svo að ekki var það nú stórmál frekar en fyrri daginn og að sjálfsögðu ekkert nema sjálfsagt að rétta hjálparhönd.
Það verður gaman að fá ykkur heim aftur.
GLEÐILEGA PÁSKA!!!
Kv. Begga