disa.bloggar.is
Fjör á FróniDísa í Sønderborg
Ég lofaði víst að láta eitthvað vita af okkur hérna á Íslandi. Við Sævar vorum hér í tvær vikur áður en Snorri og Dagný Eva komu til okkar. Sævar byrjaði í Laugalækjaskóla á mánudeginum. Hann er svo heppinn að hann fékk að fara í sama bekk og Kristófer vinur hans. Hann er alveg í skýunum með skólann og allt saman hér. Honum var tekið vel í bekknum, og ekki sakar að fá að eyða svona miklum tíma með vini sínum. Honum gengur bara vel í skólanum, nema auðvitað er íslenskan erfið. Hann tók sitt fyrsta próf í síðustu viku en það var í stærfræði. Honum gekk ljómandi vel, fékk 9,1 og var bara sáttur við það. Ein af ástæðunum fyrir því að við ákváðum að hann prufaði skólann hér var sú að sjá hvar hann stæði námslega séð miðað við jafnaldra sína hér. Það lítur út fyrir að hann standi bara ágætlega og gæti vel plummað sig hér. Hann blómstrar líka í félagskap vina sinna Kristófers, Bjarts og allra hinna. Frábært hreinlega hvað hann nær að halda sterkum tengslum við vini sína hér...enda sko alveg þess virði. Eftir skóla fer hann alltaf til Kristófers þar sem þeim leiðist held ég ekkert að dunda sér eitthvað saman. Bara gaman!
Ég er búin að vera talsvert upp á barnaspítala þar sem ég er að vinna verkefnið mitt. Ég er búin að taka 6 góð viðtöl og á 2 eftir þannig að allt er á full swing hjá mér. Svo þarf ég að skrá viðtölin niður og þýða yfir á ensku. Þetta er því heilmikil vinna og svo er ég svona að reyna að vinna úr þessu öllu saman og byrja á að skrifa sjálfa ritgerðina. En þetta gengur sem sagt allt vel og því er ég sátt.
Það var svo ekki leiðinlegt að fá feðginin til okkar á fimmtudaginn. Ég var farin að sakna þeirra mikið og sýndist það vera gagnkvæmt. Um helgina skelltum við okkur upp í sumarbústað þar sem við vorum fram á laugardag í yndislegu veðri snjó og glampandi sól. Dagný Eva er svo sátt við snjóinn. Á leiðinni heim frá flugvellinum spurði hún og benti út í myrkrið; Hvað er þetta hvíta ofan á moldinni? Hún átti að sjálfsögðu við snjóinn. Hún notar hvert tækifæri sem fæst til að trampa í snjónum og leika sér. Við keyptum snjótþotu sem við tókum með okkur upp í sumarbústað og var mikið leikið með hana. Snorri var að hjálpa Ragga bró og Bjarka að smíða og ég að dúllast með mömmu og krökkunum. Bara yndisleg helgi.
Á laugardeginum fórum við Snorri í leikhús ásamt Helgu Margréti, Annettu, Árna Jóni og vinafólki þeirra. Við fórum á Kommúnuna í Borgarleikhúsinu. Mér fannst sýningin svona la la. Ágætis afþreying en ekki mikið meira en það. Gaman samt því félagskapurinn var góður.
Á sunnudaginn var svo fyrsta fermingin hjá honum Inga töffara frænda mínum. Fermingin haldin í Rúbínsalnum í Öskjuhlíðinni...alveg hreint glæsilegur salur. Á fimmtudag eru svo tvær fermingaveislur hjá honum Arnari Mána og Emilíu skvísu. Á laugardaginn er það svo hann Elvar Þór sem býður til fermingaveislu og á mánudaginn er svo ein veislan í viðbót hjá honum Jóni Ragnari frænda mínum.
Það er sem sagt nóg að gera hjá okkur hér. Áður en Snorri og Dagný komu fór ég líka í sumarbústað með vinkonum mínum, í bíó og heimsóknir. Við eigum svo eftir að fara í slatta af matarboðum og heimsóknum, halda matarklúbb og hitta fullt af fólki. Í gærkvöldi eftir ferminguna fórum við Snorri á kaffihús og í bíó sem var rosa gaman. Snorri skellti sér svo í vinnugallan í morgunn og fór að vinna....en ekki hvað! okkur leiðist sem sagt ekki hér, enda í góðum félagskap vina og ættingja.
Það er samt alltaf skrítið að vera ekki heima, og það verður líka gott að komast í faðm vinanna í vorið í Sonderborg. En við njótum þess á meðan við erum hér.....
Knús á ykkur öll..sérstaklega ykkur í Sönder, og Hafdís, Begga, Helga ofl...takk takk fyrir að hjálpa Snorra með Dagnýju Evu og leyfa henni að vera hjá ykkur....þið eruð sko betri en engin.
Dísa og co í góðum málum á Íslandi.